| Aðalval | ||||
| Fréttir | ||||
| Liðin | ||||
| Spjallið | ||||
| Úrslit | ||||
| Leikir | ||||
| Leikjaumfjöllun | ||||
| Félagaskipti | ||||
| Reglur deildarinnar | ||||
| Stjórn deildarinnar | ||||
| Tölfræði | ||||
| Myndasíða (nýtt) | ||||
| A-Riðill | L | S | ||
| Landsliðið | 10 | 25 | ||
| Elliði | 10 | 22 | ||
| Kumho | 10 | 21 | ||
| (öll liðin) | ||||
| B-riðill | L | S | ||
| UFC Ögni | 9 | 19 | ||
| Hjörleifur | 9 | 18 | ||
| Fc Dragon | 9 | 18 | ||
| (öll liðin) | ||||
Ný heimasíða Egils-Gull deildarinnar hefur loksins litið dagsins ljós. Eins og flestum er ljóst höfum við verið í basli með heimasíðumál síðustu tvö ár. Það er orðið löngu tímabært að deildin haldi út eigin síðu og stjórni ferðinni alfarið. Forritarinn Skúli hefur unnið mikið þrekvirki og efumst við ekki að þegar uppi er staðið endum við með síðu sem skákar þeirri gömlu.
Nokkur atriði sem vert er að taka fram:
a) Spjall utandeildarinnar er með sama sniði og áður auk þess að nú er möguleiki að þurrka út þræði og athugasemdir. Einnig er hægt að loka á spjallara og ip-tölur þeirra. Miðað við hvernig framganga sumra hefur verið þá er þörf fyrir þessa nýbreytni.
b) Til þess að geta lagt inn þarf að nýskrá sig. Allir þurfa að skrá sig með kennitölu og nafni.
c) Reglur deildarinnar hafa verið uppfærða í samræmi við Aðalfund deildarinnar 2009.
d) Við viljum biðja menn um að sýna þolinmæði meðan við vinnum að fullmótun síðunnar. Allar ábendingar og tillögur eru vel þegnar og óskum við eftir því að fá allt slíkt sent með tölvupósti.
e) Forsvarsmenn liðanna hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um skráningu leikmanna og gerð leikskýrslna. Aðeins leikskýrslur sem eru gerðar í gagnagrunni síðunnar eru góðar og gildar.
Hvað mótið varðar þá erum við klárir í slaginn. Vallamál eru komin á hreint og leikjaniðurröðun er klár. Dómaramál líta vel út. Við viljum minna menn á að senda stjórn tölvupóst ef um mikilvæg málefni er að ræða. Það er markvissara heldur en að vonast eftir svari frá stjórn á spjallinu.