Aðalval
  Fréttir
  Liðin
  Spjallið
  Úrslit
  Leikir
  Leikjaumfjöllun
  Félagaskipti
  Reglur deildarinnar
  Stjórn deildarinnar
  Tölfræði
  Myndasíða (nýtt)
A-RiðillLS
  Landsliðið1025
  Elliði1022
  Kumho1021
  (öll liðin)
B-riðillLS
  UFC Ögni919
  Hjörleifur918
  Fc Dragon918
  (öll liðin)

Upphitun 4.umferð A-riðil

Toppurinn og botninn eigast svo við á Miðvikudaginn 1.Júlí en þar eigast við Elliði og FC Ice. Elliði hafa farið vel af stað þetta árið og eru í öðru sæti A-riðils með jafn mörg stig og Kumho en lakara markahlutfall. Fc Ice hafa tapað öllum sínum leikjum í sumar. Hafa lent í gríðarlega erfiðu prógrammi í byrjun móts, spilað við FC Fame, TLC og V.Júpíters, það hefur samt sem áður verið stígandi í liðinu og stóðu þeir til að mynda vel í V.Júpíters í síðustu umferð en þeim leik lauk með naumum sigri V.Júpíters 2-1. FC Ice menn koma dýrvitlausir í þennan leik og ætla að reyna að ná í fyrstu stig ársins þarna. Elliða menn verða að vera vel vakandi í þessum leik og passa vel upp á Ívar útvarpsmann Guðmundsson sem hefur farið vel á stað með FC ICE mönnum þetta árið.