| Aðalval | ||||
| Fréttir | ||||
| Liðin | ||||
| Spjallið | ||||
| Úrslit | ||||
| Leikir | ||||
| Leikjaumfjöllun | ||||
| Félagaskipti | ||||
| Reglur deildarinnar | ||||
| Stjórn deildarinnar | ||||
| Tölfræði | ||||
| Myndasíða (nýtt) | ||||
| A-Riðill | L | S | ||
| Landsliðið | 10 | 25 | ||
| Elliði | 10 | 22 | ||
| Kumho | 10 | 21 | ||
| (öll liðin) | ||||
| B-riðill | L | S | ||
| UFC Ögni | 9 | 19 | ||
| Hjörleifur | 9 | 18 | ||
| Fc Dragon | 9 | 18 | ||
| (öll liðin) | ||||
Nokkrir mjög svo athyglisverðir leikir fara fram í þessari umferð. Ef við byrjum á A-riðli þá má sjá 2.athyglisverða leiki þar.
Það verður alvöru toppslagur á Ásvöllum á þriðjudaginn 30.júní kl.19.30. þar eigast við deildar og bikarmeistarar árið 2008 V.Júpíters og Kumho Rovers.
Kumho er í efsta sæti A-riðils og hefur unnið fyrstu þrjá .leiki sína nokkuð sannfærandi, V.Júpíters eru í 3.sæti með tvo sigra og eitt jafntefli, á móti TLC. Í gegnum árin hafa þessi lið spilað nokkra leiki. Fyrst árið 2003 spiluðu liðin tvisvar, fyrst í deild og endaði sá leikur 0-0 svo í bikar þá rúlluðu V.Júpíters yfir Kumho menn 5-0. Árið 2006 spiluðu þessi lið á Tungubökkum og þar lyktuðu leikar 4-4. Í fyrra áttust þessi lið í undanúrslitum bikars og þar unnu V.Júpíters stórsigur 5-1. Þessi tvö lið hafa verið í toppbaráttu undanfarin ár og ef menn vilja sjá alvöru leik í Utandeildinni þá er bara að mæta á Ásvelli á þriðjudaginn.