Aðalval
  Fréttir
  Liðin
  Spjallið
  Úrslit
  Leikir
  Leikjaumfjöllun
  Félagaskipti
  Reglur deildarinnar
  Stjórn deildarinnar
  Tölfræði
  Myndasíða (nýtt)
A-RiðillLS
  Landsliðið1025
  Elliði1022
  Kumho1021
  (öll liðin)
B-riðillLS
  UFC Ögni919
  Hjörleifur918
  Fc Dragon918
  (öll liðin)

Upphitun 4. umferð C-riðill

C-riðilinn býður upp á tvo áhugaverða leiki þar sem toppliðinn bæði eiga að spila og spurning hvort að liðin haldi sigurgöngu sinni áfram. Bæði lið hafa leikið þrjá leiki og unnið þá alla, markatala er svo gott sem  UFC Ögni með 13-3 og Kef FC 12-2.

Kef FC á leik við Björninn þriðjudaginn 30.Júní kl.21.00. í Kórnum.

Kef FC verður á vera á tánum í þessum leik þar sem Björninn virðist vera að vakna af löngum dvala eftir slappa byrjun þetta árið. Unnu sinn fyrst leik á móti RWS 2-1 í síðustu umferð. Kef FC vann viðureign þessara liða í fyrra sannfærandi 5-0. Bara spurning hvort þeir mæta klárir í þennan leik eða með eitthvað vanmat gegn Birninum.

UFC Ögni á leik við Henson miðvikudaginn 1.júlí kl.19.00. á HK vellinum.

UFC Ögni er nýtt lið í deildinni, hafa farið gríðarlega vel af stað.Virðist vera hörkulið þarna  á ferðinni. Þeir eiga leik við hið gamalgróna lið Henson sem hefur fengið fína liðstyrk þetta árið með sameiningu við FC Moppuna.