Aðalval
  Fréttir
  Liðin
  Spjallið
  Úrslit
  Leikir
  Leikjaumfjöllun
  Félagaskipti
  Reglur deildarinnar
  Stjórn deildarinnar
  Tölfræði
  Myndasíða (nýtt)
A-RiðillLS
  Landsliðið1025
  Elliði1022
  Kumho1021
  (öll liðin)
B-riðillLS
  UFC Ögni919
  Hjörleifur918
  Fc Dragon918
  (öll liðin)

Uphitun - 5. umferð riðlakeppninnar

UFC Ögni vs. Kef Fc
 
Ögni: 1. sæti – 12 stig – mörk 22-4
Kef: 2. sæti – 12 stig – mörk 14-2

Hér er á ferðinni hörkuleikur milli tveggja efstu liðanna í C-riðli. Ögni skellti Henson um daginn 11-1 og eru því eflaust nokkuð heitir eftir þá senu. Kef flengdi Björninn 4-0 í síðasta leik og eru því eflaust ekkert síður stemmdir en Ögni.

---------------------------

Dufþakur vs. Vatnaliljur

Dufþakur: 9. sæti – 3 stig – mörk 9-12
Vatnaliljur: 2. sæti – 8 stig – mörk 7-5

Vatnaliljur gerðu jafntefli við Hjörleif í síðustu umferð. Þeir færa sig eflaust framar á völlinn og freista þess að klára sig af þessum leik til þess að halda sér áfram í toppbaráttunni. Dufþakur virðist vera kominn í gang ef marka má síðustu úrslit á móti Geirfuglunum, 7-1. Vatnaliljur eru með gott úrval leikmanna, s.s. Hreim, Heiðar Austmann og Rikka FM-celebs. Dufþakur hefur verið að styrkja hópinn upp á síðkastið með mönnum eins og Steingrími Jóh, Sumarliða Árnasyni og Þórhalli Erni.

---------------------------

Nings vs. TLC


Nings: 7. sæti – 4 stig – mörk 5-10
TLC: 6. sæti – 4 stig – mörk 9-11

TLC hefur ekki enn fundið sig í A-riðlinum eftir að hafa tapað 2 leikjum og gert 1 jafntefli. Þeir unnu Fc Ice 3-1 í 1. umferð, gerðu svo 2-2 jafntefli við Vængi Júpíters, töpuðu fyrir Kumho 4-1 og töpuðu svo óvænt 4-3 gegn Metró. Nings er í sama pakka og TLC og með jafnmörg stig. Þeir kláruðu sig af leiknum vs. Áreitni 2-1 og mæta því eflaust heitir til leiks.

---------------------------

Fc CCCP vs. Haukar U

Fc CCCP: 4. sæti – 6 stig – mörk 10-6
Haukar U: 5. sæti – 5 stig – mörk 5-3

Hér mætast stálin stálin stinn úr Hafnarfirðinum. Hér klikkar enginn á legghlífunum. Rússarnir eru á sæmilegri siglingu og geta með sigri á Haukum U blandað sér í toppbaráttuna.