Aðalval
  Fréttir
  Liðin
  Spjallið
  Úrslit
  Leikir
  Leikjaumfjöllun
  Félagaskipti
  Reglur deildarinnar
  Stjórn deildarinnar
  Tölfræði
  Myndasíða (nýtt)
A-RiðillLS
  Landsliðið1025
  Elliði1022
  Kumho1021
  (öll liðin)
B-riðillLS
  UFC Ögni919
  Hjörleifur918
  Fc Dragon918
  (öll liðin)

16.liða úrslit Bikarinn Miðvikudagur

Þá er komið 16.liða úrslitum í bikarnum, þar eru að mér sýnist bara allir leikir áhugaverðir. Af 16.liðum er 9.lið sem tóku þátt í 16.liðaúrslitum í fyrra Kumho, Vatnaliljur. Metró, Dufþakur. TLC, FC Ice, V.Júpíters, Nings og FC CCP. Tvö nýlið eru þarna Haukar U og UFC Ögni, svo FC Fame Vatnsberar, Elliði, Henson, og SÁÁ.

Á miðvikudaginn 15.Júlí eru fjórir leikir og hefst gamanið kl.19.00. á Fram og HK-velli.

 

EF við byrjum á Framvelli:

 

Dufþakur vs Henson.

Hérna mættast tvö lið sem eru búinn að vera lengi að í deildinni. Bæði þessi lið hafa valdið mér vonbrigðum þetta árið. Henson sameinaðist FC Moppunni og maður leyfði sér að halda að það væri hægt að gera ágætis lið úr þessum 2.liðum. En annað hefur komið á daginn Henson í miklu basli í C-riðlinum, búnir að spila 5.leiki vinna 2 og tapa 3. sem getur ekki talist ásættanlegt á þeim bænum.

Dufþakur er búið að vera eitt af toppliðum deildarinnar undafarinn ár en hafa runnið allsvakalega á rassgatið í upphafi móts. Búnir að spila 4.leik og tapa 3 og vinna 1. Síðast steinlágu þeir á móti Vatnaliljum 5-1. Þeir unnu Geirfugla aftur á móti sannfærandi í bikarnum

  6-2. Það verður erfitt hjá þeim að komast í úrslitakeppnina þetta ári, svo það er spurning hvort öllu verði ekki til tjaldað í bikarnum þetta árið.

 

Seinnileikurinn á Framvelli er viðureign Meto og V.Júpíters. Síðast leikur hjá þeim í deildinni var innbyrðis viðureign þeirra og lyktuðu leikar 4-2 fyrir V.Júpíters, en Metro menn voru frekar fáliðaðir í þeim leik en engu að síður náðu þeir að stríða V.Júpíters þó nokkuð. Metro skorði snemma í fyrirhálfleiknum og hélt þeirri forustu fram í seinnihálfleikinn, en bersýnilega þreyttir og þjáðir vegna manneklu. V.Júpíters refsuðu þeim grimmilega og settu 4.mörk á þá á skömmum tíma og kláruðu leikinn þar.

Ef Metro-menn ná góðum hóp saman fyrir þennan leik gætu þeir valdið Vængjunum erfið leikum. En Vængirnir ætla sér öruggleg að reyna að verja Bikarinn sem þeir unnu í fyrra.

 

Á HK-Völlur

Fyrir leikurinn þarna er FC Ice vs Vatnaliljur.

Vatnliljur hafa byrjað þetta mót glæsilega og virðast mjög öflugir þetta árið, eru efstir í B-riðlinum, leikið 5.leiki unnið 3 og 2.jafntefli. Unnu Hómer 2-0 í bikarnum sannfærandi. Spiluð við Dufþak í síðasta leik og fóru illa með þá, mjög svo sannfærandi sigur í þeim leik 5-1. Vatnliljur komu öllum á óvart í fyrra og fóru alla leið í bikarnum en töpuðu fyrir Vængjunum í vítaspyrnukeppni.

FC Ice eru akkúrat á hinum endanum á stigatöflunni í A-riðli. Búnir að spila 5.leiki og tapað þeim öllum, lent í gríðarlega erfiðum leikjum í upphafi móts, búnir að spila við öll liðinn í 5.efstu sætunum í A-riðli. Unnu Björninn nokkuð auðveldlega í 2-0 í bikarnum og hefði sá leikur getað endað með munn stærri sigri..

Þessi lið spila álíka fótbolta, verjast á mörgum leikmönnum og sækja svo hratt fram.

 

Seinnileikurinn er viðureign TLC vs SÁA.

TLC búnir að vera gríðarlega góðir undafarinn ár en hafa ekki byrjað þetta mót eins vel og áður, eru í 5.sæti í A-riðli eftir 5.leiki 2.sigrar, 2.töp og eitt jafntefli. Hafa ekki verið að spila vel undafarið, voru með unninn leiki í höndunum á móti Metro um daginn. Voru 3-1 yfir þegar 5.mín. voru til leiksloka en Metromenn náðu að skora 3.mörk á þessum tíma og tryggja sér 4-3 sigur í mjög svo skrautlegum leik…

SÁÁ aftur á móti að koma gríðarlega á óvart þetta árið. Ef ekki hefði verið fækkun á liðum á þessu ári hefðu þeir átt að falla og spila í neðrideild þetta árið. En vegna fækkunar í deildinni þetta árið gátu þeir ekki fallið, held að menn þar á bæ séu bara ánægðir með það miðað við frammistöðuna hjá þeim þetta árið, eru í 2.sæti í B-riðli.

Komu öllum á óvörum og skelltu Hjörleifi í bikarnum 3-1. Hafa verið að safna að sér góðum mönnum í allar stöður og virðast til alls líklegir í sumar.

Þarna ef hörkuleikur á ferðinni og verður gaman að sjá hvort liðið fer áfram í þessari rimmu..

 

Þar sem ekkert er spilað í deildarkeppnin á meðan bikarinn fer fram hvet ég alla til að mæta á völlinn og sjá þessa hörkuleiki

 

KV
G.P:E