| Aðalval | ||||
| Fréttir | ||||
| Liðin | ||||
| Spjallið | ||||
| Úrslit | ||||
| Leikir | ||||
| Leikjaumfjöllun | ||||
| Félagaskipti | ||||
| Reglur deildarinnar | ||||
| Stjórn deildarinnar | ||||
| Tölfræði | ||||
| Myndasíða (nýtt) | ||||
| A-Riðill | L | S | ||
| Landsliðið | 10 | 25 | ||
| Elliði | 10 | 22 | ||
| Kumho | 10 | 21 | ||
| (öll liðin) | ||||
| B-riðill | L | S | ||
| UFC Ögni | 9 | 19 | ||
| Hjörleifur | 9 | 18 | ||
| Fc Dragon | 9 | 18 | ||
| (öll liðin) | ||||
Þá er komið að seinni fjórum leikjunum í 16.liða úrslitum í bikarnum. Þar eru hörkuleikir á ferðinni.
Ef við byrjum á Ásvöllum þá fara 2.leikir þar fram og hefst gamanið kl.19.30.
Haukar U vs Fame.
Þessi lið eru í toppbárttu í sínum riðlum. Haukar U í 4.sæti í B-riðili og FC Fame í sama sæti í A-riðli.
Haukar U eru nýtt lið í deildinni en það eru nokkri þarna innanborðs sem hafa spilað í deildinni áður. Þeir unnu sannkallaðan derbyslaginn nú um daginn á móti FC CCP 1-0 í hörkuleik og eru til alls líklegir í sumar. Þetta er hörkulið sem ætlar sér stóra hluti í ár.
FC Fame eru búnir að vera mörg ár í deildinni og hafa staðið sig með miklum sóma í gegnum árin. Hafa farið ágætlega af stað þetta sumarið og eru í 4.sæti í A-riðli með 3.sigra 1.jafntefli og 1.tap. Ég býst við hörkuleik þarna sem gaman verður að fylkjast með. Bæði þessi lið eiga fína möguleika á sæti í úrslitakeppninni þetta áriði.
Seinni leikurinn er:
Nings vs Vatnsberar.
Þessi lið spiluð tvo leiki í fyrra einn í deild og annar í bikar. Vatnsbera unnu deildarleikinn 4-3 en Nings vann bikarinn 7-2. í skrautlegum leik þar sem Vatnsberar byrjuðu leikinn með 7.menn á vellinum og Nings 10. þegar líða tók urðu Vatnberar 10. og Nings 11
Vatnsberar eru í neðsta sæti í B-riðli, búnir að spila 4.leiki. Einn sigur hefur litið dagsins ljós hjá þeim og var sjá leikur á móti Hómer 3-1.
Nings er í 7.sæti í A-riðli og hafa spilað 5.leik. Unnu Áreitni 2-1 og gerðu svo árlegt jafntefli við FC Fame 1-1. í fyrstu umferð mótsins.
Ég held að þetta verði hörkuleikur þar sem tvo lið af mjög svipaðir getu leiða saman hesta sína.
Á Fjölnisvelli fara fram 2.leikir byrjað þeir kl.19.30.
Kumho vs UFC Ögni.
UFC Ögni eitt af þessum nýju liðum sem er að standa sig gríðarlega vel á sínu fyrst ári í deildinni. Eru í öðru sæti í C-riðlinum. Hafa unnið alla sína leiki nema einn. Unnu Henson 11-0 um daginn. Þarna er á ferðinni nokkrir vaskir menn sem hafa æft með bæði FH og Haukum í Hafnafirði. Eru að spila hörkuflottan bolta.
Kumho er eitt af elstu liðum deildarinnar en hafa samt sem áður alltaf endurnýjað sig reglulega. Hafa verð með fast sæti í úrslitakeppninni undafarinn ár. Hafa verið að standa sig vel í upphafi móts og eru í 3.sæti A-riðils og hafa unnið alla sína leiki, nema gegn Vængjum Júpíters sem unnu Kumho menn 2-0.
Þetta verði hörkuleikur tveggja góðra liða.
Seinnileikurinn er:
FC CCP vs Elliði.
Þarna held ég að það sé komið efni í einn af stóru leikjum ársins. Þessi lið hafa marga hildinna háð í gegnum árin. Bæði þessi lið hafa unnið þennan þessa dollu ef ég man rétt og vita því bæði hvað til þarf í svona leik.
FC CCCP menn hafa farið frekar rólega af stað þetta árið, eru í 6.sæti í B-Riðli eftir 4.leiki 2.töp og 2.sigurleikir. Þeir eiga helling inni það er vitað. Verður gaman að sjá hvort að Rússneska mulnings vél hrökkvi í gang í kvöld.
Elliði hafa sjaldan eða aldrei byrjað mótið af jafn miklum krafti og nú, tróna á toppi A-riðils eftir 5.leiki. Hafa ekki tapað leik þetta árið. Virðast vera að finna sitt gamla form sem týndist á síðustu leiktíð. Margir hafa án efa verið farnir að efast um Elliða-menn að þeir hefðu þetta í sér ennþá, en þeir hafa sýnt og sannað það í byrjun móts að þeir kunna þetta ennþá.
Hér verður barist upp á líf og dauða allan leikinn…
Hvet alla til að mæta á þennan leik og horfa á hörkuleik tveggja góðra liða…
Ef ekki, þá er örugglega hægt að skemmta sér vel yfir frægasta stuðningsmanni Utandeildarinnar sem hlýtur að láta sjá sig á vellinum… Ég mæti pottþétt til að fylkjast með hinum eina sanna MQLLER-num…..
KV
G.P.E.