| Aðalval | ||||
| Fréttir | ||||
| Liðin | ||||
| Spjallið | ||||
| Úrslit | ||||
| Leikir | ||||
| Leikjaumfjöllun | ||||
| Félagaskipti | ||||
| Reglur deildarinnar | ||||
| Stjórn deildarinnar | ||||
| Tölfræði | ||||
| Myndasíða (nýtt) | ||||
| A-Riðill | L | S | ||
| Landsliðið | 10 | 25 | ||
| Elliði | 10 | 22 | ||
| Kumho | 10 | 21 | ||
| (öll liðin) | ||||
| B-riðill | L | S | ||
| UFC Ögni | 9 | 19 | ||
| Hjörleifur | 9 | 18 | ||
| Fc Dragon | 9 | 18 | ||
| (öll liðin) | ||||
Þá er komið að sjöundu umferð. Þarna eru nokkrir flottir leikir í gangi. All margir leikir skipta töluverðu máli varðandi hvaða lið komast áfram í úrslitakeppnina þetta árið.
Lið einsog FC CCCP og TLC sem hafa verið í úrslitakeppninni undafarinn ár verða að fara að hala inn stigum og í ofnálag að vonast eftir að liðin fyrir ofan sig tapi stigum. Á sunnudaginn eru 2 stórleikir í B-riðli, FC CCCP vs Hjörleifur og Haukar U vs Esjan.
26.07.09 19:00 - Fc CCCP vs. Hjörleifur - Ásvellir
Þetta verður rosalegur baráttuleikur, það er allt eða ekkert fyrir FC CCCP og Hjölla-menn verða að vinna til að ná efsta sætinu í B-riðli. Hjörleifur búnir að vera sterkir í deildinni í ár, unnið 4 leiki og gert í jafntefli gegn Vatnaljum. FC CCCP eru ekki skugginn af sjálfum sér. Hafa ekki verið að spila vel undafarið, en sýndu samt í leiknum á móti SÁÁ að það er fótbolti í þessu liði. En ef þeir ætla sér eitthvað í þessum móti þá verða þeir að vinna þennan leik. Verður bullandi barátta og stemming á Ásvöllum.
26.07.09 20:30 - Esjan vs. Haukar U - Kórinn
Þarna eru á ferðinn 2 ný lið í deildinni sem hafa verið að standa sig mjög vel. Þessi lið áttust við í bikarnum og þá höfðu Haukar U betur í hörkuleik sem þurfti að framlengja.
Haukar U geta með sigri í þessum leik farið langt með að tryggja sig í úrslitakeppnina á sínu fyrsta ári í deildinni. Esjan aftur á móti verður að sigra til að missa Haukana ekki allt of langt frá sér. Þarna held ég að verði gríðarlega skemmtilegur leikur á ferðinni. Esjan hefur harma að hefna eftir bikarleikinn og koma dýrvitlausir í þennan leik.
27.07.09 20:30 - Elliði vs. TLC - HK-velli.
Þarna mætast stálin stinn, erkifjendurnir mætast á vellinum og barist verður til síðasta manns. Elliði hefur verið að spila góðan bolta þetta árið og eru annað tveggja liða í deildinni sem eru með fullt hús stiga. Eru svo gott sem búnir að tryggja sig í úrslitakeppnina þetta árið. TLC menn hafa aftur á mót ekki fundið gírinn þetta árið og hafa komið á óvart fyrir slaka frammistöðu í ár. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir áframhaldið hjá þeim, það dugar ekkert nema sigur á mánudaginn til að þeir eigi möguleika á einu af 4 toppsætum A-riðils í ár. Það verður blóð sviti og tár á HK-Vellinum á mánudagskvöld...
28.07.09 21:00 - Fc Fame vs. Vængir Júpíters - Kórinn
Þarna mætast liðinn í öðru og fjórða sæti A-riðils. Fc Fame þurfa helst sigur til að hrista af sér liðin fyrir neðan sig.
Fame menn hafa verið að spila fína bolta þetta árið og hafa komið mér á óvart í ár. Unnu mjög svo mikilvægan sigur á TLC mönnum í síðustu umferð og geta með sigri á Vængjum komist langt með að tryggja sig í úrslitakeppnina í ár.
Vængirnir búnir að vera gríðarlega þéttir í sumar. Hafa unnið 5 leiki og gert eitt jafntefli gegn TLC. Eru með frábært lið, eru deildar og bikarmeistarar árið 2008. Eru með eitt sigursælasta lið í sögu Utandeildarinnar. Þarna verður athyglisverður leikur á ferðinni.
29.07.09 21:00 - Fc Keppnis vs. Kef Fc - Ásvellir
Hér er á ferðin ekta derby-slagur af Suðurnesjunum eins og best er á kosið. Kef FC eru ósigraðir í C-riðlinum. Hafa komið mér á óvart í sumar með fínni spilamennsku. Þarna er hörkulið á ferðinni og eiga þeir örugglega eftir að tryggja sig upp í efrideild að ári. Sömuleiðis hafa Fc Keppnis verið að koma mér á óvart. Með sigri á nágrönnum sínum á miðvikudaginn geta þeir blandað sér í alvöru í toppbaráttuna í C-riðli. Mæli með að menn kíki á þennan leik því það er alltaf gaman af þessum derbyleikjum…
Hvet alla til að mæta á völlinn. Utandeildin - skemmtilegasti bolti á Íslandi í dag....
KV
G.P.E.