| Aðalval | ||||
| Fréttir | ||||
| Liðin | ||||
| Spjallið | ||||
| Úrslit | ||||
| Leikir | ||||
| Leikjaumfjöllun | ||||
| Félagaskipti | ||||
| Reglur deildarinnar | ||||
| Stjórn deildarinnar | ||||
| Tölfræði | ||||
| Myndasíða (nýtt) | ||||
| A-Riðill | L | S | ||
| Landsliðið | 10 | 25 | ||
| Elliði | 10 | 22 | ||
| Kumho | 10 | 21 | ||
| (öll liðin) | ||||
| B-riðill | L | S | ||
| UFC Ögni | 9 | 19 | ||
| Hjörleifur | 9 | 18 | ||
| Fc Dragon | 9 | 18 | ||
| (öll liðin) | ||||
Nú er komið að stóru stundinni í bikarnum. Um helgina fara fram 8.liða úrslit, allir leikirnir fara fram á Sunnudaginn og er spilað á Ásvöllum og í Kórnum.
Þetta verða allt saman hörkuleikir og hvet ég menn til að fara á völlinn á morgun og kíkja á þessa leiki. Nokkur af þekktari liðum deildarinnar eru þarna á ferðinni, einsog Elliði, TLC, Vængir Júpíters og Dufþakur. Tvö ný lið eru þarna Haukar U og UFC Ögni.
Ef við byrjum á Ásvöllum þá eru þar tveir hörkuleikir.
09.08.09 19:00 UFC Ögni vs TLC
Þarna er á ferðinni mjög athyglisverður leikur. TLC ekki verið að gera gott mót í ár, búnir að missa af sæti í úrslitakeppninni þetta árið svo að einni möguleikinn á dollu í ár er í bikarnum, þeir hljóta að mæta dýrvitlausir í þennan leik.
Ufc Ögni er nýtt lið í deildinni í ár og eina neðrideildarliðið sem eftir er í bikarkeppnini þetta árið og ætla sér örugglega að halda uppi heiðri neðrideildarinnnar. Ufc Ögni hefur staðið sig vel á sínu fyrst ári, eru í öðrusæti í C-riðli og eiga góða mögurleika á að komast í umspilsleik fyrir úrslitakeppnina. Gerðu sér lítið fyrir og slógu Kumho menn út í 16.liða úrslitum í bikarnum, þá áttu ekki margir von á að þeim tækist það en með góðum leik og viljan að vopni tókst það..
Það er nokkuð ljóst að þetta verður hörkuleikur. Tlc menn hungrar í dollu og Ögna menn vita að með góðum leik geta þeir alveg unnið reynsluboltana í TLC..
09.08.09 20:30 Nings vs Vatnaliljur.
Vatnliljur búnir að standa sig vel í ár, eru í 3.sæti í B-riðlinum og eru svo gott sem búnir að tryggja sig í eitt af fjórum efstu sætunum þar. Vatnliljur komu mjög á óvart í fyrra og fóru alla leið í úrslitaleikinn en töpuðu fyrir Vængjum eftir vítaspyrnukeppni. Þetta er hörkulið, vel spilandi og baráttan í góðum gír.
Nings eru búnir að vera lengi í deildinni og hafa í gegnum tíðina verið svona jójó lið, eiga fína leiki inn á milli en detta svo niðrá frekar miður góða leiki.. Vandmál þeirra hefur verið lítill leikmanna hópur og óheppnir með meiðsli. En ef þeir ná öllum sínum sterkustu mönnum í þennan leik þá er alveg ljóst að þetta verður hörkuleikur.
Í Kórnum á Sunnudaginn er tveir athyglisverðir leik.
09.08.09 19:30 Dufþakur vs Elliði
Þarna mættast tvö elstu lið deildarinnar. Þar sem meðal aldur leikmanna er komin út fyrir öll velsæmdarmörk. En lengi lifir í gömlum glæðum einsog hið forna málstæki segir..
Elliða menn hafa sannað á þessu tímabili að þeir eru ekki alveg dauðir úr öllum æðum, hafa verðið að spila feikilega vel á þessu tímabili. Ekki tapað leik í sumar sem verður að teljast gott hjá þessum háöldruðu mönnum. Tróna á toppinum í A-riðli með fullt hús stiga og virðast ekki ætla að gefa tommu eftir í baráttunni um báðar dollurnar þetta árið..
Dufþakur hefur valdið mér töluverðum vonbrigðum þetta árið eftir að hafa fengið góðan leiðstyrk í ár, en það virðist ekki skipta neinu mál, eru í miðju þófi í B-riðlinum. Eiga samt veika von um að ná sæti í úrslitakeppninni þetta árið en verða þá að fara að girða upp sína brók.
Held að Duffa menn mætti arfavitlausir í þennan leik og gefi sig alla í þetta verkefni því þarna liggur besti möguleikinn þeirra á dollu í ár.
09.08.09 21:00 Haukar U vs Vængir Júpíters
Haukar U hafa komið sterkir inn í mótið á sínu fyrsta ári í deildinni. Eru í 4.sæti í B-riðli og ef þeir halda rétt á spilunum þá eiga þeir að komast í úrslitakeppnina í ár. Hafa verið að spila glimrandi bolta í síðustu leikjum. Markatala hjá þeim í síðustu 2.leikjum 10-1 sem verður að teljast nokkuð gott. En þessi leikur verður mikil prófraun fyrir þá.
Vængirnir hafa verið á flottu flugi í sumar og eiga góða möguleika á að verja báðar dollurnar sem þeir unnu í fyrra og verða fyrsta liði í sögu Utandeildarinnar til að vinna tvöfald tvö ár í röð.
Endilega sem flestir að kíkja á völlinn