| Aðalval | ||||
| Fréttir | ||||
| Liðin | ||||
| Spjallið | ||||
| Úrslit | ||||
| Leikir | ||||
| Leikjaumfjöllun | ||||
| Félagaskipti | ||||
| Reglur deildarinnar | ||||
| Stjórn deildarinnar | ||||
| Tölfræði | ||||
| Myndasíða (nýtt) | ||||
| A-Riðill | L | S | ||
| Landsliðið | 10 | 25 | ||
| Elliði | 10 | 22 | ||
| Kumho | 10 | 21 | ||
| (öll liðin) | ||||
| B-riðill | L | S | ||
| UFC Ögni | 9 | 19 | ||
| Hjörleifur | 9 | 18 | ||
| Fc Dragon | 9 | 18 | ||
| (öll liðin) | ||||
Laugardaginn 12. september fór fram bikarúrslitaleikur Egils-gull deildarinnar. Haukar U, sem unnu Vatnaliljur í undanúrslitum, öttu kappi við Elliða, sem slógu UFC Ögna út í undanúrslitum. Leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi og það var ekki eitt autt sæti í stúkunni; mætingin var vonum framar.
Bæði lið voru með vel mönnuð lið og þéttan bekk. Frá fyrstu mínútu mátti sjá að bæði lið voru klár í leikinn. Fyrri hálfleikur var varla hálfnaður þegar Haukar U skora mark. Þéttingsfast skot fyrir utan teig sem leikmaður Elliða reynir að skalla frá en knötturinn endar í þaknetinu - óverjandi. Staðan 1-0 fyrir Hauka U og þannig stóðu leikar í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði af krafti og Elliði var líklegri aðilinn til að skora mestan partinn. Þegar um 15 mínútur voru eftir af leiknum jafnar Elliði og loksins einhver spenna kominn í leikinn. Þegar örfár mínútur voru eftir af eðlilegum leiktíma kemst Elliði yfir 2-1 og hélt þeirri stöðu þar til enda leiks.
Elliði er s.s. bikarmeistari 2009. Elliði var síðast bikarmeistari árið 2006.