Aðalval
  Fréttir
  Liðin
  Spjallið
  Úrslit
  Leikir
  Leikjaumfjöllun
  Félagaskipti
  Reglur deildarinnar
  Stjórn deildarinnar
  Tölfræði
  Myndasíða (nýtt)
A-RiðillLS
  Landsliðið1025
  Elliði1022
  Kumho1021
  (öll liðin)
B-riðillLS
  UFC Ögni919
  Hjörleifur918
  Fc Dragon918
  (öll liðin)

Powerradedeildin 2010 Kick off

Góða kvöldið fótboltabullur og aðrir áhugamenn um Powerradedeildinna 2010
Þá er loksins komið að stóru stundinni... Kick off á morgun.

Það er búið að taka smá tíma að púsla þessu saman en það hafðist að lokum.

Einsog áður sagði þá hefst gamanið á morgun..
Nokkur ný lið hafa skráð sig í keppninna og verður spennandi að sjá hverning þeim gengur.
Ætla aðeins að renna í gegnum fyrstu umferðinna og taka út nokkra áhugaverða leik.

Kumho  Meistarar síðasta árs byrja titill vörininna í leik Áreitni á Þriðjudaginn.
Þessi lið áttust tvisvar við í fyrra og Kumho menn unnu báðar viðureignir þessar liða nokkuðu sannfærnadi.
Kumho menn búnir að missa nokkra sterka leikmenn, þar á meðal markahæðsta mann mótsins
Í fyrra.  Áreitnismenn ætla  sér örugglega að gera betur en þeir gerðu í fyrra og ætla sér án efa að láta Kumho menn finna til tevatnsins.

Landsliðið er eitt af þessum nýju liðum. Þeir eiga leik við Metro á mánnudaginn á Hk vellinum.
Metromenn voru hálfgert jójó lið í fyrra, áttu flotta leiki inn á milli en gerðu svo upp á bak í leikjum sem þeir áttu að gera betur í.
Eru með mjög frambærilegt lið þegar þeir ná að virkja allan mannskapinn sinn.
Landsliðið hefur verið að ná góðum úrslitum í æfingarleikjum nú fyrir mót og verður gaman að sjá hvort að þeir nái að fylkja því eftir nú þegar alvaran tekur við.

Stórleikur 1.umferðar er án efa leikur UFC Ögna og Sáá.
Þessi lið áttust við í úrslitakeppninn í fyrra í leik sem Ufc Ögni vann en tapaði svo leiknum á kæru.
Þarna er hörkuleikur á ferðinni.
Sáá voru eitt af þessum liðum sem kom mjög á óvart í fyrra, voru í toppbaráttu allt síðasta sumar og komust í úrslitakeppninna.
UFC Ögni voru nýtt lið í fyrra og komu gríðarlega á óvart í fyrra. Urðu í öðru sæti í neðrideildinni í slógu út FC Fame í umspili um sæti í úrslitakeppninni. Stóðu sig feikilega vel í úrslitakeppninni hefðu komist í undanúrslit í keppninni hefu menn þar bara klárað sig af í leikskýlsumálinu fræga.

Ætla að láta þetta gott heita.
Óska mönnum gleðilegs fótbolta sumars  2010
KV
Stjórninn.