Aðalval
  Fréttir
  Liðin
  Spjallið
  Úrslit
  Leikir
  Leikjaumfjöllun
  Félagaskipti
  Reglur deildarinnar
  Stjórn deildarinnar
  Tölfræði
  Myndasíða (nýtt)
A-RiðillLS
  Landsliðið1025
  Elliði1022
  Kumho1021
  (öll liðin)
B-riðillLS
  UFC Ögni919
  Hjörleifur918
  Fc Dragon918
  (öll liðin)

8.liðúrslit Poweradedeildarinnar 2010

Þá er komið að 8.liða úrslitum í Poweradebikarnum 2010. Þarna eru hörkuleikir á ferðinn.
Það er alveg ljóst að það verða krýndir nýjir Bikarmeistarar þetta árið, Elliða menn eru dottnir út og verja því ekki bikarinn þetta árið og ef ég man rétt þá er kominn nokkur ár frá því að önnur lið en V.Júpíters og Elliðamenn unnu þennan bikar, verður athyglisvert að sjá nýtt nafn á bikarnum. Menn verða bara afsaka mig ef ég fer með rangt mál hér held að ekkert af þessum liðum sem eftir eru hafa hampað þessum titli áður. En að leikjunum sjálfum. Í kvöld fara fram 2.leikir á HK-vellinum.

26.07.10 19:30    UFC Ögni        -    Dufþakur    HK
Þarna er hörkuleikur á ferðinni. Ögna menn tróna á toppi B-riðils, hafa bara tapað einum leik það sem er af þessu tímabil, það var gegn Vatnliljunum. Áttu stórleik í síðustu umferð þar sem þeir unnu Esjuna sem hefur komið sterkir inn þetta sumarið 6-1. Virðast gríðasterkir um þessar mundir. Dufþakur er töluvert sterkari en þeir hafa verið undanfarinn ár hafa komið skemmtilega á óvart þetta sumarið, eru í 4.sæti í A-riðli hafa tapað 2.leikjum í ár gegn Ísbirninum og Kumho, unnu flottan sigur á Landsliðinu 6-3 í einum skemmtilegast leik ársins í sumar. Hvet alla til að mæta á þennan leik og sjá flottan fótbolta.
    
26.07.10 21:00    Landsliðið    -    Kef Fc    HK
Landsliði hafa komið skemmtilega á óvart þetta árið, eru í 2.sæti í A-riðli hafa bara tapað einum leik í sumar og það var gegn Dufþaki. Landsliði byrjaði þetta móta af miklum krafti og unnu hvern stórsigur á fætur öðrum. Eru það lið sem hefur skorða flest mörk í deildinni þetta árið, meðaltal um 4.mörk í leik. Hafa aðeins gefið eftir í síðust tveim leikjum á móti Dufþaki og FC Keppnis. Rétt mörðu sigur þar 1-0.
Kef FC byrjaði á erfiða pakkanum þetta árið, Elliði,Landslið og Kumho 3.ósigrar þar.
Unnu svo Áreitni 6-1 hér um daginn eru með lið sem á góðum degi getur þvælst fyrir öllum liðum í deildinni ef þeir mæta með sitt sterkasta lið. Þessi lið mætust í 2.umferð í sumar og þá hafði Landsliði betur 4-1. Held að þarna verði hökuleikur um sæti í undanúrslitum í Poweredebikarnum.