Aðalval
  Fréttir
  Liðin
  Spjallið
  Úrslit
  Leikir
  Leikjaumfjöllun
  Félagaskipti
  Reglur deildarinnar
  Stjórn deildarinnar
  Tölfræði
  Myndasíða (nýtt)
A-RiðillLS
  Landsliðið1025
  Elliði1022
  Kumho1021
  (öll liðin)
B-riðillLS
  UFC Ögni919
  Hjörleifur918
  Fc Dragon918
  (öll liðin)

Upphitun 4.Umferð B-riðil

Leikur Dufþaks og Geirfugla ætti einnig að vera nokkuð áhugaverður. Þessi leikur fer fram á Ásvöllum á Sunnudaginn 28.Júní kl.20.30.

Dufþakur verið með eitt af bestu liðum deildarinnar undanfarin ár, verið með fast sæti í úrslitarkeppninni. Dufþakur hefur byrjað mótið skelfilega illa þetta árið og sitja á botni B-riðils, hafa tapað báðum leikjum sínum sannfærandi 6-0 tapa á móti SÁÁ og 5-2 tap á móti Hjörleifi. Eru búnir að vera að styrkja lið sitt gríðarlega mikið með leikmönnum einsog Steingrími Jóhannssyni,Sumarliða Árnasyni og  Þórhalli Örn Hinriks. Á von á því að þeir mæti arfavitlausir í þennan leik og berjist fyrir sínum fyrstu stigum. Geirfuglarnir voru það lið sem kom mér mest á óvart  og enduðu í öðru sæti í sínum riðli í fyrra. Hafa ekki byrjað mótið af sama krafti þetta árið, spilað þrjá.leiki og tapað tveim og unnið einn. Þessi lið hafa leikið nokkra leiki saman. Dufþakur flengdi Geirfuglana 2006 8-0. En árið 2007 gerðu þessi lið jafntefli 1-1. Þessi lið áttust við í úrslitarkeppninni í fyrra og lauk þeim leik með sigri Dufþaks 3-0. Þessi lið spiluð líka í bikarnum og þar hafði Dufaþakur betur 6-2. Geirfuglar hljóta að mæta með hefnd í huga fyrir þennan leik.

Án efa verður þetta hörkuleikur þar sem bæði þessi lið þurfa að fara að girða upp um sig brók ef þau ætla í úrslitarkeppnina þetta árið.